Efling dygða í gegnum mannkostamenntun
Í þessu yfirliti er farið stuttlega yfir skipulag kennslu í tengslum við verkefni sem nefnist „Efling dygða í gegnum ljóðmennt“. Verkefnið gengur út á að efla siðferðisþroska nemenda í gegnum kennslu ljóðlistar. Tilgangur þess er að þróa og meta aðferð í siðferðilegri menntun, innan unglingastigs grunnskóla og á framhaldsskólastigi, í gegnum lestur, samræðu um og ritun ljóðlistar. Bakgrunnur verkefnisins á rætur að rekja til reynslu höfundar við kennslu í heimspeki og siðfræði bæði á unglingastigi grunnskóla og framhaldsskólastigi. Höfundur hefur bæði kynnst því að nemendur finni sig sjálfkrafa í kennsluefninu og byrja strax að hugsa sjálfstætt og skapandi og, eins, að þeir sjái engan tilgang með efninu né heldur námi yfir höfuð. Með þessu verkefni vill höfundur bjóða upp á nálgun við íslenskukennslu sem nýtir verkæri siðferðilegrar menntunar og heimspekilegrar samræðu.
Kennsluáætlanirnar eru sex talsins. Um er að ræða 80 mínútna kennslustundir.
Hér getur að líta röð kennslustundanna og stutt lýsing á innihaldi þeirra.
Kennslustundirnar byggja að verulegu leyti á aðferðafræði þeirri sem nefnd er heimspeki með börnum (e. P4C). Kennaranum er bent á efni og leiðbeiningar um samræðustjórn í verkefnabanka Félags heimspekikennara, og einkum skrif Brynhildar Sigurðardóttur um Þróun samræðufélags (2013) og ýmsar æfingar í Verkefnabanka Heimspekitorgsins um heimspekilega samræðu, sjá einkum hér.
Kennsluáætlununum fylgja tveir glærupakkar sem notaðir eru í vinnustofunum í ritlist (kennsluáætlanir 5 & 6). Þar styðst ég að nokkru leyti við ritlistaræfingar sem Eiríkur Örn Norðdahl birti á bloggi sínu (vefsíðan er ekki lengur aðgengileg en í hlekknum hér á undan má finna afrit af henni) 6. febrúar 2014 og kann ég Eiríki bestu þakkir fyrir að leyfa mér að nýta nokkrar þær hugmyndir hans sem þar birtust.
- Hæfniviðmið • Kennslustund 1 • Námsmat
- Hæfniviðmið • Kennslustund 2 • Námsmat
- Hæfniviðmið • Kennslustund 3 • Námsmat
- Hæfniviðmið • Kennslustund 4 • Námsmat
- Hæfniviðmið • Kennslustund 5 • Vinnustofa 1 (glærupakki) • Námsmat
- Hæfniviðmið • Kennslustund 6 • Vinnustofa 2 (glærupakki) • Námsmat
Hvað er mannkostamenntun?
Í tímaritinu Hug, 30 (2019), birtist viðtal sem Kristian Guttesen tók við Kristján Kristjánsson.
Kristján er prófessor í mannkostamenntun og dygðasiðfræði og hefur um langt árabil starfað við aðstoðarframkvæmdastjóra Jubilee-rannsóknarmiðstöðvarinnar um mannkosti og dygðir við Háskólann í Birmingham.
Ofangreint viðtal, þar sem meðal annars er fjallað um tilgang mannkostamenntunar og farsæld sem markmið menntunar, má lesa hér.
